4.11.2008 | 09:12
Orð dagsins er ÁBYRGÐ
Það er svo sérstakt með þetta fallega land sem við búum á að það virðist vera þannig, að alveg sama hvað gerist hérna er ekki nokkur leið að finna þann sem er ábyrgan ef eitthvað slæmt gerist.
Samt er það nú þannig að það eru allir fljótir að stökkva til ábyrgðar fyrir öllum góðum hlutum, já eða hlutum sem við héldum að væru góðir hlutir.
Ef við tökum nú í burtu augljósa ábyrgð stjórnvalda og skoðum þessa útrásarvíkinga, þá eru þeir búnir að vera vaða upp um alla veggi með peningana sem þeir framleiddu úr loftinu einu saman. Þetta er allt hlutir sem við vitum enda mikið talað um þetta í fréttum undanfarið, það sem ég skil ekki er afhverju eru þessir sömu menn komnir á kreik á ný byrjaðir að kaupa upp fjölmiðla(sennilega til að rétta sinn hlut) og ekki hafa þessir menn látið kreppuna stoppa sig í að klára fleiru hundruð fermetra glæsivillur sem þeir eru að koma upp hér og þar um landið.
Íslendingar liggja undir ámælum um allan heim og ég held að stór partur af því hvernig litið er á okkur sé að ráðamenn þjóðarinnar skorast undan ábyrgð og eru heldur ekki tilbúnir að draga víkingana fram í dagsljósið, hversu oft höfum við ekki heyrt af norskum ráðherrum sem hafa sagt starfi sínu lausu fyrir þær sakir einar að hafa haft manneskju í vinnu og borgað henni eitthvað undir borðið.
Þessi kreppa er tilkominn vegna þess að menn voru á fullu að verzla með peninga sem voru ekki til og ef VIÐSKIPTARÁÐHERRA BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON ber ekki ábyrgð á því hver í andskotanum gerir það þá, ef hann er ekki ábyrgur þá hljóta það samt að vera starfsmenn í hans ráðaneyti sem hann er að halda hlífðarskyldi yfir.
Ég er samfærður um það að ef menn sýndu það að þeir væru starfi sínu vaxnir væri ekki litið jafn mikið niður á okkur og raunin er, og ég er nokkuð viss um að aðrar þjóðir væru frekar til í hjálpa okkur ef þeir gætu verið vissir um að við séum ekki að setja peningana í hendurnar á sömu fíflunum og settu okkur á hausinn.
Kv. Bjössi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2008 | 19:16
Hvað varð um öll trén??
Ég er búin að spá svolítið í því hvað hafi orðið um öll þessi tré sem átti að gróðursetja í kolefnisjöfnunarvímu íslendinga sem tröllreið öllu hérna um árið.
Kv. BjG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 12:46
Sumar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2008 | 18:36
Valdagræðgi á landinu litla.
Það er svolítið skrítið þegar fólk er komið til valda þá virðist ekki meiga andmæla því, a.m.k. öðruvísi en viðkomandi fari í fýlu skipti um flokk eða splundri meirihluta.
Er þetta sanngjarnt, annað hvort verðum við að fara að kjósa bara fólk eða flokka það gengur greinilega ekki upp að treysta pólitíkusum fyrir neinu nema að auka sína eigin farsæld og frama.
Þetta er búið að vera að gerast trekk í trekk og því er nú ver og miður oft í frjálslindaflokknum en auðvitað var hann ekki einn í borgarstjórnardramanu og svo var sprengingin á Bolungarvík.
Er ekki kominn tími á það að fólk fari að vinna að því sem það lofaði kjósendum að það myndi gera ekki eða öllu kjörtímabilinu í að finna fólk til að vinna með skipta um flokka og stinga fólk í bakið.
Mér er alveg sama hver er í minnihluta og hver er í meirihluta ef fólk ber virkilega hag bæjarfélagsins fyrir brjósti þá eiga allri að geta unnið saman að þeim göfugu markmiðum að gera borg eða bæ að betri stað, ekki vera að hamstra biðlaun og bíða eftir að fá að vera borgarstjóri.
Ef fólk er ósammála er þá ekki hægt að vinna saman er það einhver skilyrði að allir sem vinni saman séu sammála um alla hluti.
Ég skora á stjórnmála menn sem eru einungis að sinna eigin framapoti að fara að vinna vinnuna sína og vinna fyrir okkur kjósendur. Það eru auðvitað fjölmargir sem eru að gera rétt og vel og þeim ber að hrósa.
Kv. Bjössi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2008 | 11:41
Lögregluríkið Ísland
Að horfa á aðfarir lögreglunar gengn trukkabílstjórum og öðrum í Norðlingaholti er hræðilegt, nú var ég ekki á staðnum þannig ég er ekki alveg dómbær á hversu eldfimt ástandið þarna var. En meðað við fjölda lögreglu manna þarna efast ég um að það hafi verið þörf fyrir það ofbeldi sem maður sér lögrelgluna beita á myndböndum frá staðnum. Væntanlega hefur komið leyfi fyrir eithverskonar valdbeitingu en að 5 lögrelgumenn ráðist geng grjótkastara með og berji hann með kylfunum eftir að hann er búin að gefast upp, nei það getur ekki verið rétt því burt séð frá því að hann hafi kastað grjóti og jafnvel slasað lögreglu mann þá er það hluti lögreglunar handtaka manninn ekki berja hann
og færa hann svo í burt í járnum þá eru þeir farnir að hefna sín áður en réttlætinu er komið yfir hann.
Svona til að fyrir byggja allan miskilning er ég ekki að segja að það sé í lagi að grýta lögrlegluna, ég er bara að segja að það réttlæti ekki að lögreglan leggi hendur á viðkomandi heldur handtaki manninn og láti dæma hann í réttarkerfinu okkar sem lögrelgan hlítur nú að eiga að hafa trú á.
Mér finnst það hætulegur leikur að verja lögrelguna í svona tilfellum því þetta eru ekki rétt vinnubrögð og manni finnst að lýðurinn hljóti að eiga að njóta vafans.
Kv. Bjössi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.3.2008 | 21:13
Ekki alveg verið að segja satt.
Það sem er búið að vera að gerast hérna uppá varnar/háskólasvæði er ekki alveg þannig að hérna sé verið að byggja upp blómlegt þorp. Nema það sé markmiðið með þorpum að senda alla íbúana í nágranabæina eftir þjónustu og afþreyingu. Búðin sem opnuð var hérna er ekki nálægt því að vera í verðflokk sem námsmenn ráða við að versla í og opnunartímin er alls ekki til að bæta það upp, því miður. Kaffihúsið sem er að koma er búið að vera að koma alveg frá því að fyrstu 700 sálirnar fluttu inná svæðið í ágúst. Og ekki hefur skort rekstraraðila sem vilja vera með rekstur, fyrst og fremst virðist þetta stoppa hjá KEILI. Meðað við að ég hef búið í smábæjum og stórborgum myndi ég segja að þetta sé að stærsta leiti enþá mjög mikill draugabær. Það hefur vantað mikið uppá að fólkið sem starfar hérna við svæðið sé að vinna í því að beina fólkinu inn á svæðið til að sækja afþreyingu og þjónustu. Hér á t.d. ekki að opna sundlaugina því það er sundlaug í Reykjanesbæ, Ef þetta verður eins og stefnt er að 5000 manna samfélag þá hlítur að vera grundvöllur fyrir meir þjónustu heldur en verslun, kaffihúsi og íþróttahúsi. Þeir smábæir sem ég hef sótt heim eru nú flestir betur búinir en þetta. Þannig í staðin fyrir að kalla þetta háskóla bæ eins og þetta ætti að vera og vonandi verður. Þá myndi ég vilja kalla þetta afskiptalausa úthverfið í Reykjanesbæ.
Kv. Bjössi
P.s. Svo maður verði ekki grítur fyrir þess grein, þá er ég mjög ánægður hérna og margt hérna uppfrá er mjög gott og horfir til batnaðar er góðar í mörgum málum. En staðreindin er sú að hér hefur ekki verið haldið nóg og vel á spilunum og það hefði ekki verið flókið að gera betur og vonandi að þeir taki það til sín sem eiga.
Skemmtilegar upplýsingar um svæðið á þessari slóð.
Draugabær að blómlegu þorpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2008 | 20:52
Hverju skilar kapítalisminn okkur?
Ofverndun fyrirtækja á kostnað launþega kom mér glöggt fyrir sjónir í vikunni. Þannig er mál með vexti að ég hætti í vinnu í október og eins og lög gera ráð fyrir átti ég að fá gert upp desemberuppbót og orlofsuppbót í samræmi við starfshlutfall á árinu sem á þetta að vera gert upp á síðasta launaseðli.
Skemmst er frá því að segja að fyrrum atvinnurekandi minn snuðaði mig um þetta. Ég hringdi ítrekað í hann og bað hann að gera þetta upp við mig. Alltaf lofaði hann bót og borgun en minna var um efndirnar. Eftir að mín margrómaða þolinmæði var á þrotum, rúmum tveim mánuðum eftir að þetta átti að vera komið í minn vasa, hafði ég samband við Eflingu stéttarfélag.
Þar talaði ég við ráðgjafa sem var greinilega mjög vanur að eiga við slík mál enda kemur það ekki á óvart og kem ég þar að ástæðunni fyrir greinaskrifunum. Þegar ég fer með mína launaseðla til Eflingar er atvinnurekandanum sent bréf og tjáð að hann hafi viku til að borga, og ef hann gerir þetta upp innan viku eru ENGIR EFTIRMÁLAR, engir vextir og engin sekt fyrir að reyna að svíkjast undan að borga mér þennan aur. Það er í ótrúlega mörgum tilvikum sem þetta er haft af fólki því margir gera sér ekki grein fyrir að þeir eiga lögbundinn rétt á þessu því orðið jólabónus hefur fests á þessu sem er mjög skrítið því þetta er alls enginn bónus heldur réttur okkar.
Ég er ansi hræddur um þeir séu ófáir sem hafa þarna misst af peningunum sínum því þetta þykir ekki nógu og merkilegur peningur svo að það borgi sig að tryggja það að við fáum þetta. Hvað þá að atvinnurekendur hljóti einhverja refsingu ef þeir reyna að stinga þessu undan.
Björn J.
Um bloggið
Björn Júlíus Grímsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar